Islandiae Listrænar prentmyndir frá Íslandi
English Account Karfa
Grænihryggur

Landslagsmyndir

Grænihryggur

3 kr.

Úr lofti birtist Torfajökulssvæðið sem samspil lita, lína og áferðar. Ljósar áreyrar og dökk gil liggja á milli fjallshlíða í hlýjum jarðlitum, en grænblár litur Grænahryggjar sker sig úr. Sjónarhornið sýnir bæði sérstöðu hryggjarins og fjölbreytnina í landslaginu sem umlykur hann. Á jörðu niðri er upplifunin önnur en ekki síður sterk. Gangan að Grænahrygg er krefjandi, yfir óbrúaðar ár og um brattar hlíðar, með víðáttumiklu útsýni og síbreytilegum litum á leiðinni. Náttúrufegurðin gefur tilefni til að staldra oft við. Þegar síðustu spölarnir eru fram undan er gott að setjast niður, fá sér léttan bita og gefa sér tíma til að horfa. Það þarf ekki að komast alveg að hryggnum til að njóta hans. Þeir sem halda nær þurfa að vaða aðra á, en sjálfur hryggurinn er viðkvæmur og ekki má ganga upp á hann. Frá upphafsstaðnum við Fjallabaksleið nyrðri, vestan Kirkjufells, eru tæpir átta kílómetrar að Grænahrygg. Gera má ráð fyrir sex til tíu klukkustundum fram og til baka. Fyrir þá sem vilja njóta útsýnisins, taka ljósmyndir og gefa sér góðan tíma er skynsamlegt að ætla nær tíu klukkustundir og leggja snemma af stað. Nánari upplýsingar um gönguleiðina að Grænahrygg hjá Ferðamálastofu.

Back to category

Verslun læst

Sláðu inn lykil til að skoða vörur.