Islandiae
Um
Hafsteinn Róbertsson fangar ljós, liti og form íslensks landslags með myndavél og dróna. Á sumrin sækir hann innblástur á hálendi Íslands, en á köldum vetrarnóttum beinir hann linsunni að norðurljósunum á Reykjanesi. Íslenskir bæir og þorp skipa einnig sérstakan sess í ljósmyndun hans. Hvert þeirra hefur sinn karakter og sögu, oft mótaða af nálægðinni við hafið, þar sem samspil lands og sjávar birtist með nýjum hætti úr lofti.
Hafsteinn sér sjálfur um prentun allra verka á hágæða ljósmyndapappír. Með því að hafa umsjón með öllu ferlinu, frá myndatöku til fullbúinnar prentunar, tryggir hann að hvert verk endurspegli listræna sýn hans og þá alúð og nákvæmni sem lögð er í hverja ljósmynd.
Um Islandiae
Islandiae er vettvangur Hafsteins fyrir ljósmyndir og prent. Nafnið vísar til hins forna latneska heitis Íslands og endurspeglar þá virðingu fyrir landinu sem liggur að baki hverri mynd. Hér er hægt að panta prentanir í ýmsum stærðum, sendar hvert sem er í heiminum — beint frá ljósmyndaranum sjálfum.
Smá latína
Á miðöldum (12.–15. öld) voru þrjár latneskar myndir í notkun yfir Ísland: Islandia (beint úr "Ísland"), Snelandia og Insula Gardari (Eyja Garðars, eftir Garðari Svavarssyni). Arngrímur Jónsson lærði (1568–1648) var sá sem gerði nafnið "Islandia" að alþjóðlegu heiti. “Islandiae" er í raun eignarfallsmynd af "Islandia" í latínu — merkir "Íslands" eða "af Íslandi". Nafnorðsmyndin sjálf er Islandia, og hún kemur oftast fyrir í titlum eins og Historia Islandiae ("Saga Íslands") eða Descriptio Islandiae ("Lýsing Íslands"). Á þessari síðu eru myndir frá Íslandi svo nafn vefsíðunnar ber þess merki eða "Myndir Íslands" / "Myndir af Íslandi" sem er á latínu: "Imagines Islandiae"