Islandiae
Um
Hafsteinn Róbertsson er íslenskur ljósmyndari sem fangar ljósið og landslagið sem mótar Ísland og Færeyjar. Á sumrin sækir hann innblástur upp á hálendið þegar fært er þangað, og á köldum vetrarnóttum myndar hann norðurljós á Reykjanesi. Sérstakt áhugamál hans eru íslensk bæjarfélög — hvert með sín sérkenni og flest við sjávarsíðuna, þar sem einstakt mótvægi lands og sjávar birtist best séð úr lofti.
Allar prentanir eru unnar af Hafsteini sjálfum á gæðapappír. Með því að hafa stjórn á öllu ferlinu — frá myndatöku til frágangs — fær hvert verk þá vandvirkni og nákvæmni sem aðeins höfundurinn sjálfur getur lagt í það.
Um Islandiae
Islandiae er vettvangur Hafsteins fyrir ljósmyndir og prent. Nafnið vísar til hins forna latneska heitis Íslands og endurspeglar þá virðingu fyrir landinu sem liggur að baki hverri mynd. Hér er hægt að panta prentanir í ýmsum stærðum, sendar hvert sem er í heiminum — beint frá ljósmyndaranum sjálfum.
Smá latína
Á íslenskum og evrópskum miðöldum (12.–15. öld) voru þrjár latneskar myndir í notkun yfir Ísland: Islandia (beint úr "Ísland"), Snelandia og Insula Gardari (Eyja Garðars, eftir Garðari Svavarssyni). Arngrímur Jónsson lærði (1568–1648) var sá sem gerði nafnið "Islandia" að alþjóðlegu heiti. “Islandiae" er í raun eignarfallsmynd af "Islandia" í latínu — merkir "Íslands" eða "af Íslandi". Nafnorðsmyndin sjálf er Islandia, og hún kemur oftast fyrir í titlum eins og Historia Islandiae ("Saga Íslands") eða Descriptio Islandiae ("Lýsing Íslands"). Á þessari síðu eru myndir frá Íslandi svo nafn vefsíðunnar ber þess merki eða "Myndir Íslands" / "Myndir af Íslandi" sem er á latínu: "Imagines Islandiae"